Jæja...ætli maður verði ekki að blogga um tvær síðustu
helgar....
Váááá...ég hef aaaaaldrei upplifað annað eins. Byrjum á
tónleikahelginni...
Á föstudagskvöldinu steig Magni snillingurinn á svið í Fjarðaborg
og spilaði öll lögin af glænýrri plötu sem ég mæli sterklega með! 2
lög úr Rockstar (Creep og Dolphins Cry), 2 lög með Shape (World
Alone og You Say) og svo afgangurinn eftir hann. En á undan honum
var hinsvegar annar maður sem átti upprunalega ekki að vera þetta
kvöld en það var enginn annar en söngvari
Sólstrandagæjanna...Jónas...tók örfá lög af sinni nýju plötu sem er
gjörsamlega stuuuuurluð...fáránlega góð plata sem fær hæðstu
einkunnir frá mér
Svo var trúbbinn Hlynur Ben sem spilaði frameftir nóttu...mætti
reyndar ekkert á hann vegna þess að ég var pikkfastur á fylleríi
niður hjá Álfasteini...hörkustuð þar.
Laugardagskvöldið var ennþá betra...þá var komið að Bræðslunni
2007...þeir sem sáu um þá tónleika voru Magni og Jónas, Aldís FJóla
systir Magna, LayLow og meistarinn sjálfur eða jafnvel
kóngurinn...Megas. Magni og Jónas voru eiginlega með sama setlist
og kvöldið áður en Aldís söng örfá lög og stóð hún sig alveg
frááábærlega!! Kom mér virkilega á óvart. Svo hlustaði ég nú lítið
á LayLow en Megas var aðalnúmerið með 28 lög

öll sín þekktustu +
ný lög...var hreint út sagt stórkostlegur. Þá var komið að balli
með Á Móti Sól eftir tónleikana, þeir standa alltaf fyrir sínu.
Haha...voðalega gaman að sjá Megas á balli með ÁMS...ægilega var
hann fullur enda að hans sögn var hann búinn að vera það í 2 daga.
Haha...svo vorum við á rúntinum eftir ballið...ég, Andrea frænka,
Birkir og Sigurvin...við erum að rúnta eitthvað þarna í smá tíma og
förum niður á tjaldstæði..þar mætum við ágætis Yaris og í honum var
Steinar Pálmi meðal annars sem var það snjall að biðja ekki
bílstjórann um að stoppa heldur fleygði hann sér bara út á
ferð...svo kemur hann haltrandi til okkar og skellihlæjandi og
grátandi samtímis...það var alveg stórkostlegt

Svoo afrekaði
Sigurvin frændi minn að detta útúr bílnum hans Bikko, við vorum
semsagt að fara út til að pissa..ég og Sigurvin....hann reynir að
klöngrast útúr bílnum en vill svo ekki skemmtilega til að ég bít
hann í öxlina og hann öskrar og þá verður Steinar eitthvað pirraður
og hrindir honum út...hann skallarhurðina og hrynur úr
bílnum....það var MIKIIIIIÐ hlegið afþví og svo gerðist annar
hlutur fyrir kappann sem hann vill ábyggilega ekki að sitji hér inn
þannig að ég sleppi því bara

Þá var þetta kvöld á enda...allir
frekar vel í glasi nema Andrea og Bikko sem var dræver.
Stórkostleg helgi...
Svo var komið að verslunarmannahelginni...hún var rooooooosaleg!!!
Þá var komið að 3 daga fylleríi sem ég á aldrei eftir að sjá eftir.
Föstudagskvöldið var frekar dauft...eeeen samt ágætt svona....ball
með Dararamminum sjálfum...Nonna Argríms og hljómsveitinni
Nefndinni...þeir voru ægilega góðir en ég náði aldrei að koma mér í
gírinn. Svo á laugardagskvöldinu...þá var nú bara grenjandi rigning
og leiðindi....en við drifum okkur samt út á lífið og hringdi
Stefán Bragi í mig og sagði mér að koma í partý útá Snotrunesi..þar
var eitthvað fólk og var svona frekar rólegt partý

allt á góðum
nótum en þetta kvöld birtist enn einn drykkjusauðurinn...Heimir
frændi minn. Svo var bara strunsað beint á ball og það fyndnasta í
heimi við þetta ball að Gísli Hjörvar mætti í pollagalla og
stígvélum á ballið....sem vakti mikla undrun en honum tókst aldrei
skilja afhverju??

(er vani að fólk mæti í pollagöllum og
stígvélum á böll??? getur einhver svarað því???

) Þar var Natan
minn góður vinur mættur á svæðið og einnig Biggi Hákon og voru þeir
alveg eldhressir...
Sunnudagurinn var langbestur við þessar tvær helgar!!! Stefán Bragi
reyndar komst ekki sem var HUNDLEIÐINLEGT en ég hafði góðan
félagsskap af Heimi, Helga, Björn Natans og Steinari Pálma. Við
Steinar litli keyptum okkur dýrindis grillkjöt og var förinni
heitið inn á Réttir en þar voru grill sem hægt var að skella
kjötinu beint á og brenna...ægilega gaman...Steinar fól mér það
skemmtilega starf að grilla en þar sem ég var orðinn helvíti
ölvaður...þá reyndist það of erfitt fyrir mig vegna ölvunar en ég
grillaði samt og fannst mér ég sjálfur gera þetta með prýði en
Steinar var á allt öðru máli...fannst þetta svo ógirnilegt að hann
neitaði að borða þetta en ég át þetta með bestu list. Svo átti ég
ábyggilega kvöldið þegar ég var manaður að slamma hjá
harmonikkukalli sem sat þarna og spilaði...ég tók þeirri áskorun og
var hlegið alveg ótrúlega að mér...hann starði bara á mig kallinn
og hugsaði ábyggilega "Er þetta fífl þroskaheft eða?????"
hahahaha...Svo fórum við strákarnir þegar þetta var að klárast
niður að Álfa Café....þar tók stuðið við!!!

já ég gleymdi að
nefna það að Helgi frændi minn fékk nýtt viðurnefni frá
Steinari..... "Rolli" vegna þess arna að Helgi fór inní eina
réttina og var að týna gras til að þurrka sér...þá allt í einu
sprakk Steinar úr hlátri og kallaði "Rolli" gott móment

haha
Á Álfa Café gerðist margt og mikið...Baddi stórsnillingur í Árbæ sá
um að skemmta fólkinu og tók ég einmitt með honum 3 lög á
eftirminnilegan hátt "Blindsker, Sólstrandargæji og Blíðasti Blær",
en þarna hafði Andrea litla frænkz slegist í hópinn en hún vildi
ekki syngja blessunin. Svo var Helgi frændi minn þinn það góður við
mig að kaupa handa mér bjór (ahhhh...ég stal honum reyndar en það
er allt annað mál) og var hann ekki sáttur með það en mér fannst
það mjög fyndið

Svo fann ég þennan dýrindis vindil liggjandi úti
og sagði ég Steinari mínum að kaupa svona líka...þá værum við svo
töff...hann stökk af stað inn og keypti sér einn svona á 2000
KALL!!!!! Steinar var helvíti hneykslaður og spyr mig svo hvort að
minn hafi verið svona dýr...ég svaraði bara "Það veit ég ekki....ég
fann minn bara hérna liggjandi" oooog Steinar var EKKI
sáttur...hahaha enda drap hann á vindlinum sínum í bjórnum
mínum!!!! (sem hann gaf mér reyndar hahahahaha

) Svo strunsaði
Helgi frændi minn nú í burtu og heimt til sín eftir að ég sló bjór
framan í hann :/ sem ég veit að vera ekki að fallega gert en ég var
ofurölvi þannig að ég gat lítið annað gert...fyrirgefðu kallinn
minn
Jæja...þá er ég búinn að rifja þessar síðustu 2 helgar upp...alveg
hreint það besta sem ég hef lent í!!!
Það verður bara einn titill og það er maður þessarar 2 helga...það
er enginn annar ennnn...daddarada!!!
STEINAR PÁLMI ÁGÚSTSSON....besti djammfélagi sem ég hef
kynnst...algjör öðlingur og stórsnillingur...takk fyrir mig Steinar
minn...þetta var geðveikt...."Svoooooo satt" manstu?

hahaha
Daddi Bjöss kveður í sæluvímu!
Já...ég gleymdi að minnast á það að eftir ballið á laugardeginum um
versló fórum ég, Steinar og Andrea...heim til ömmu og afa Steinars
og þar fórum við á kostum...Steinar helti niður bjór eftir að
einhver bankaði á gluggann...hahahaha

yfir öll fínu spilin sem
voru víst notuð í fatarpóker kvöldið áður að mér skilst

Svo bað
ég Andreu 2svar sinnum að koma í Týnu og hún sagði já í bæði
skiptin (píííínu ljóska)

en Steinar var ekkert sáttur og ég
þurfti að týna þau upp sjálfur...heheh ;P Svo dó ég víst í stólnum
hjá afa Steinars...Óla Gústa...blessuð sé minning hans og var
Steinar ALLS EKKI sáttur með það

svo þegar ég var að staulast
uppúr stólnum þá féll ég kylliflatur á gólfið og dó þar einnig

alveg stórkostlegt kvöld

það sem við hlóum mikið líka...vááá
En jæja...Steinar, Heimir, Stebbi Bragi, Helgi, Sigurvin, Bjössi,
Birkir, Natan, Biggi og Andrea, takk kærlega fyrir mig, þið
björguðu þessu alveg hjá mér...líka Megas...ég elska þig! :*
hahaha
Takk fyrir mig